bloggi?
esseeer..
nýtt ár gengið í garð eins og
líklega(vonandi) flestir vita, til hamingju með það..
áramótin voru fín, ég var
reyndar spurður eitthvað útí það hvort ég hefði bara verið í
einhverri barnapössun á tímabili en það er önnur saga, tölum ekki
meir um það.. skrautlegt kvöld allavega. ég kvarta allavega
ekkiiIiI yfir neinu, nema jú hefðum kannski getað spilað þetta
kvöld allt öðruvísi en aLLLLavega það koma önnur áramót eftir þessi
heEehHEheH
handbó er kominn á fullt
aftur, eldra árið átti leik í morgun en það gekk því miður ekki
nógu vel hjá þeim.. ætlaði á leikinn en mér tókst að sofa yfir mig,
þrátt fyrir heiðarlega tilraun við að stilla vekjaraklukku. ég man
ekki einu sinni eftir því að hafa slökkt á henni í morgun, lendiði
einhverntíman í því?
Ef það er eitthvað eitt sem ég
gerði mikið af í jólafríinu þá var það að fara í bíó.. hahah, ég,
sigurjón og aron mjög duglegir í því. Talandi um bíó, þá ætla ég að
væla aðeins, djöfull er þetta viðbjóðslega dýrt? Bíómiðinn kostar
900kr, gos+nammi/popp kostar yfirleitt eitthvað um 300-500 krónur..
agalegt, alveg hreint agalegt.
síðan eru jú prófin í MA að
fara byrja á fimmtudaginn hjá fyrsta bekk. býst fastlega við því að
ná öllum prófunum og er bara nokkuð bjartsýnn á þetta, allt annað
yrði hreint og beint faranlegt.. ég er reyndar alltaf bjartsýnn á
próf en ég meina það er bara jákvætt hEeEHhe.
hey jú, svo voru jólin líka
þarna einhverntíman. fékk nýtt rúm í jólagjöf frá gamla og gömlu og
er vel sáttur með það, síðan bara þetta týpiska.. geisladiskar, dvd
myndir, bolir og þannig lagað.
ég fæddist 1990 og það er
komið 2007 núna, sem þýðir að ég fæ bílpróf.. er nokk viss um að
það verði frekar solid að þurfa ekki að labba eða fá far hvert sem
maður þarf að fara innan skamms.
það má kannski bæta þvi inní að henkeeee
larsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir rauðu djöflana í dag og
setti kvikindið svona eins og eitt stk. mark! hvilikur meistari!
hef fuuuuuulla trú á að þetta lið eigi eftir að gera góða hluti
þetta tímabilið!
ég er samt orðinn nokkuð viss
á því að þetta sé orðið alltof langt blogg en eitthvað þarf ég að
gera til að bæta upp fyrir síðustu 3 blogg sem mönnum eins og
Metúzalem (hann gengur reyndar undir mörgum nöfnum) þóttu ekki
nægilega góð.
.....bliiiiizer